INGÓLFSTORG - KVOSIN Samkeppni um uppbyggingu í miðborg Reykjavíkur

Fyrra þrep - hugmyndasamkeppni

Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnir til tveggja þrepa samkeppni. Fyrra þrepið er hugmyndasamkeppni um endurskoðun á hönnun og skipulagi svæðis sem afmarkast af Aðalstræti, Hafnarstræti, Veltusundi, Vallarstræti, Thorvaldsensstræti og Kirkjustræti. Í þessum hluta samkeppninnar er lögð áhersla á skipulag almenningsrýma á svæðinu og frumhönnun hótels. Huga skal að heildarmynd svæðisins og tengingum við aðliggjandi almenningsrými með notagildi og umhverfisgæði að leiðarljósi.

Seinna þrepið er framkvæmdasamkeppni unnin í samvinnu við lóðarhafa lóðanna Aðalstrætis 7 og 11, Vallarstrætis 4, og Thorvaldsensstrætis 2, 4 og 6. Allt að 5 tillögur verða valdar úr fyrra þrepi til að forhanna hótel og útfæra nánar almenningsrými. Samkeppnin fer fram samkvæmt keppnislýsingu þessari, fylgigögnum og samkeppnisreglum Arkitektafélags Íslands útgefnum 1994. Keppnislýsing hefur verið unnin í samstarfi við lóðarhafa sem hyggst byggja hótel á samkeppnissvæðinu.

Megintilgangur samkeppninnar er að:

  • kalla fram góða heildarlausn að skipulagi, hönnun og samhengi svæðisins sem myndar ramma utan um fjölbreytt borgarlíf
  • fá fram góða lausn að hönnun hótels sem fellur vel að núverandi byggð svæðisins og sé góður fulltrúi byggingarlistar
  • laða fram lausnir á framtíð húsanna Vallarstræti 4 og Aðalstræti 7

Í fyrra þrepi samkeppninnar er þátttaka öllum heimil að undanskildum dómnefndarmönnum, ritara dómnefndar, trúnaðarmanni og ráðgjöfum dómnefndar, einnig þeim sem starfa á teiknistofu með þessum aðilum, vinna að verkefnum með þeim eða eru þeim nátengdir. Vafatilvik skal bera undir stjórn Arkitektafélags Íslands. Þeir þátttakendur, sem valdir verða til þátttöku í seinna þrep keppninnar og hafa ekki leyfi til að leggja aðaluppdrætti fyrir skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkur, skulu tryggja sér löggiltan samstarfsaðila.

Skilafrestur tillagna er 18. janúar 2012.

Nánari upplýsingar er að finna í keppnislýsingunni (íslenska | English)
sem er einnig aðgengileg á vefsíðum skipulags- og
byggingarsviðs, www.skipbygg.is og Arkitektafélags Íslands,
www.ai.is. Ítargögn eru fáanleg þeim sem skrá sig til þátttöku
gegn greiðslu þátttökugjalds sem er 5.000 kr.

Niðurstöður dómnefndar á fyrra þrepi samkeppninnar

Results of the jury for the first stage of the competition

Keppnislýsing - Seinna þrepið ( íslenska | English )


Innskráning / Login

Týnt lykilorð - Lost password